Hundar í nágrenninu
Hvað ætli séu margir hundar í Reykjavík?
16. maí síðastliðinn tók gildi ný samþykkt um hundahald í borginni. Þar er kveðið á um að skrá yfir veitt leyfi til hundahalds skuli birt á heimasíðu umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar. Og nú er listinn kominn á netið hér.
Þarna má leita eftir heimilisföngum. Það er svosem ágætt. En væri ekki gaman að sjá þetta á korti? Jú, það væri það einmitt.
Þessvegna tók ég gögnin saman og útbjó kort sem er hér: gogn.in/hundar. Þar má sjá hversu mörg hundaleyfi eru í næsta nágrenni við hvaða punkt sem er í borgarlandinu.
Smá tölfræði:
| Póstnúmer | Mannfjöldi | Hundaleyfi | Fjöldi manna á hvert hundaleyfi |
|---|---|---|---|
| 101 | 15733 | 248 | 63 |
| 103 | 2024 | 13 | 156 |
| 104 | 9043 | 168 | 54 |
| 105 | 15938 | 209 | 76 |
| 107 | 8434 | 130 | 65 |
| 108 | 12256 | 240 | 51 |
| 109 | 11925 | 233 | 51 |
| 110 | 11120 | 257 | 43 |
| 111 | 8577 | 114 | 75 |
| 112 | 17096 | 560 | 31 |
| 113 | 5756 | 59 | 98 |
| 116 | 799 | 46 | 17 |
Götur með flesta hunda:
Fannafold: 36
Bakkastaðir: 26
Smárarimi: 26
Vættaborgir: 24
Esjugrund: 23
Hér fyrir neðan geturðu leikið þér með kortið eða smellt hér til að opna það í öðrum glugga:
Eru gögnin á bakvið þetta orðin vel við aldur?
Já… Þau hafa ekki verið uppfærð síðan þetta fór fyrst á netið – ég er ekki alveg viss um að Reykjavíkurborg haldi skrániningunni á netinu vel við, en ég skal taka það aftur út þaðan fljótlega.